Fjölbreytt og öflug heilsutengd þjónusta
Hjá okkur finnur þú sérfræðinga á öllum sviðum heilsu og heilbrigðis. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og reynum að tryggja þér árangur sem endist.

-
Tímapantanir
mottaka@klasinn.is -
Almennar fyrirspurnir
klasinn@klasinn.is -
Símanúmer
599-1600 -
Opnunartími
Virka daga 6:00-19:50, lau 7:30-13:50 og sun 10:00-13:50 -
Staðsetning
Bíldshöfða 9
Vinsæl námskeið

Klúbburinn
Regluleg hreyfing bætir árum við lífið og lífi í árin. Mikil áhersla er lögð á það í Klúbbnum að allir stýri álagi út frá eigin getu og því hentar námskeiðið fyrir alla sem hafa ákveðinn grunn í hreyfingu.
Fjölbreytt þjálfun einkennir tíma í Klúbbnum. Æfingar bjóða upp á háa ákefð fyrir þá sem vilja taka vel á því, en einnig bjóða þjálfarar námskeiðsins upp á einfaldari og auðveldari útfærslur æfinga. Klúbburinn er einstaklingsmiðuð hópaþjálfun sem hentar öllum sem þurfa ekki mikla sérhæfingu.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Inn af búningsklefa er notalegt slökunarsvæði, sem inniheldur heitan pott og sauna. Klúbburinn er kenndur á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum á átta tímasetningum. Iðkendur skrá sig í einhvern þeirra hópa en er frjálst að mæta á öðrum tímum þegar það hentar.
Tímasetningarnar eru eftirfarandi:
- 6:15 (Snær)
- 7:15 (Snær)
- 9:00 Kvennaleikfimi (Sigríður)
- 12:10 (Sigríður)
- 14:00 (Ingunn)
- 16:30 Kvennaleikfimi (Saadia)
- 17:30 (Ingunn í sal 3)
- 17:30 (Saadia í sal 1)
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu
|
19.400 kr
|
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti
|
20.600 kr
|
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests
|
21.800 kr
|
Stakur mánuður
|
23.400 kr
|

Kvennaleikfimi
Regluleg hreyfing bætir heilsu og líðan. Kvennaleikfimi Heilsuklasans hefur alltaf verið vinsælt námskeið, enda hentar það öllum konum.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar, þar sem boðið er upp á púl og fjör. Erfiðleikastig er miðað út frá getu hvers og eins, því hentar Kvennaleikfimi jafnt hraustum konum sem og þeim sem þurfa að fara varlegar í sakirnar. Þjálfari námskeiðsins er Sigríður Einarsdóttir, sem býr yfir meira en 30 ára reynslu af þjálfun.
Kvennaleikfimin er kennd 3x í viku, þar sem fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans er innifalinn. Tímarnir fara fram á eftirfarandi tímum:
- Mán mið og fös kl 9:00
- Mán, mið og fös kl 16:30
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 19.400 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 20.600 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 21.800 kr |
Stakur mánuður | 23.400 kr |

60+
Þegar við eldumst er enn mikilvægara en áður að viðhalda hreyfingu í rútínu hversdagsins. Með reglulegri hreyfingu á efri árum eru lífsgæði aukin og heilsunni viðhaldið.
Á 60+ námskeiðum Heilsuklasans er áhersla lögð á fjölbreytta þjálfun. Unnið er að bættu þoli og auknum styrk í vinalegu andrúmslofti Heilsuklasans. Í 60+ er einnig sérstök áhersla á jafnvægi og liðleika, þar sem þeir líkamlegu þættir eiga til að dvína með hækkandi aldri ef ekki er unnið markvisst að þeim.
Þjálfarar 60+ námskeiða Heilsuklasans sýna fjölbreyttar útfærslur af æfingum til að hver og einn geti valið erfiðleikastig út frá eigin getu. Einnig ganga þeir á milli iðkenda og leiðbeina eftir þörfum.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Tveir fastir tímar eru fyrir hvern hóp, en fyrir þá sem vilja bæta þriðju æfingunni við þá er opinn 60+ tími á föstudögum kl 11:00.

Þjálfun í vatni
Langar þig að stunda líkamsrækt en hræðist hefðbundna hreyfingu sökum verkja sem hún veldur? Hefur þú þurft að hætta að stunda reglulega líkamsrækt vegna óþæginda eða eymsla í stoðkerfi? Þá gæti þjálfun í vatni hentað þér!
Þjálfun í vatni hefur sömu líkamlegu áhrif og æfingar á landi. Styrkur, þol, jafnvægi og liðleiki eru allt þættir sem þjálfun í vatni hefur jákvæð áhrif á. Vatnið dregur úr áhrifum þyngdaraflsins og því koma mun minni högg á liðamót í ökklum, hnjám, mjöðmum og baki. Auk þess dregur vatnið úr áhrifum stirðleika, sem auðveldar ýmsar hreyfingar.
Tímar Heilsuklasans í þjálfun í vatni fara fram í Mörkinni, þar sem gengið er inn um inngang að Suðurlandsbraut 64. Innifalið í verðinu eru tveir tímar í viku í lokuðum hópi, auk korts í tækjasal Heilsuklasans. Tímarnir fara fram á eftirfarandi tímasetningum:
- Mán&mið kl 18:10-18:50 – erfiðleikastig 2 (Hjördís)
- Mán&mið kl 18:50-19:30 – erfiðleikastig 3 (Hjördís)
- Mán&mið kl 19:30-20:10 – erfiðleikastig 4 (Sissa)
- Þri&fim kl 10:15-10:55 – erfiðleikastig 1 (Sissa)
- Þri&fim kl 10:55-11:35 – erfiðleikastig 2 (Sissa)
- Þri&fim kl 11:35-12:15 – erfiðleikastig 3 (Sissa)
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 19.400 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 20.600 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 21.800 kr |
Stakur mánuður | 23.400 kr |

Léttara líf - haust 2025
Léttara Líf er grunnnámskeið í heilsurækt, sérstaklega ætlað fólki sem lifir með offitu og fylgikvillum þess. Megináhersla er á reglubundna líkamsrækt undir handleiðslu íþróttafræðings, auk fræðslufyrirlestra hjá innkirtlalækni og næringarfræðingi. Námskeiðið er opið öllum, hvort sem það er sótt eitt og sér eða samhliða öðrum meðferðum, svo sem meðferð með þyngdarstjórnunarlyfjum (t.d. Wegovy eða Ozempic) eða eftir skurðaðgerð vegna offitu.
Með því að sameina reglulega hreyfingu og fræðslu við aðrar meðferðir er lagður traustur grunnur að bættri heilsu og auknum lífsgæðum til lengri tíma. Námskeiðið stendur yfir í fjóra mánuði og markmiðið er að leggja fystu drög að heilsusamlegum lífsstíl til frambúðar. Mikilvægt er að líta á heilsurækt sem langvarandi verkefni en ekki einungis skammtímalausn.
Innifalið í námskeiðinu
Námskeiðið varir í fjóra mánuði og skiptist í 13 vikur í lokuðum hópi og 4 vikur í framhaldshópi. Á fyrstu þremur mánuðunum er lagður traustur grunnur að reglulegri hreyfingu, með áherslu á rétta líkamsbeitingu og stigvaxandi æfingaálag sem eykst samhliða auknum styrk og bættu þoli. Auk þess fara fram fjórar fræðslur sem styðja við þátttakendur í að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl. Í síðasta mánuðinum velja iðkendur síðan framhaldshóp sem hentar þeirra áherslum og markmiðum.
Líkamsræktarhluti námskeiðsins er kenndur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 18:30-19:20. Tímarnir fara almennt fram í lokuðum sal, en einnig er kennd notkun æfingartækja í tækjasal. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn, og kennslan miðar að því að þáttakendur læri á tækin og búnaðinn svo þeir geti mætt á eigin vegum ef vilji er fyrir hendi. Fyrstu vikurnar er þó mælt með að einbeita sér að mæta í sem flesta tíma og líta á frekari mætingu í ræktina sem viðbót.
Fræðsluhluti námskeiðsins felur í sér fjóra fyrirlestra, tveir hjá innkirtlalækni og tveir hjá næringarfræðingi. Hver fyrirlestur tekur um klukkustund og hefst rúmum klukkutíma áður en líkamsræktartíminn byrjar, svo auðvelt er að mæta beint af fyrirlestri í ræktina. Fyrirlestrarnir skipta miklu máli og við hvetjum alla til að sækja þá.
Fyrirlestrarnir eru á eftirfarandimánudögumeins og hér segir:
- 1. september kl 17:15 (Vika 2) – “Fjárfesting í góðri heilsu – almennt um offitu”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 22. september kl 17:15 (Vika 5) – “Mataræðið sem ein heild”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
- 13. október kl 17:15 (Vika 8) – “Fjárfesting í góðri heilsu – hvað get ég gert sjálf/ur”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 3. nóvember kl 17:15 (Vika 11) – “Heilbrigt samband við mat”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Upphafs- og lokaviðtal
Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er boðið upp á 30 min upphafsviðtal við íþróttafræðing námskeiðsins, þar sem gerð verður líkamsmæling (sjá nánar hér) og umræða um heilsu iðkanda. Eftir fyrstu þrjá mánuðina er sambærilegt lokaviðtal innifalið, með líkamsmælingu, áður en fjórði og síðasta mánuðurinn hefst.
Fagaðilar námskeiðsins
- Saadia Auður Dhour – Íþróttafræðingur með margra ára reynslu. Leggur áherslu á jákvæða upplifun af heilsurækt, óháð getu eða markmiðum.
- Sigríður Björnsdóttir – Innkirtla- og efnaskiptalæknir. Vann á Karólínska Sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 15 ár. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem sérfræðingur í offitu og beinþynningu. Unnið bæði í klínískri heilbrigðisþjónustu sem og starfi sem sérfræðingur í beinþynningu og offitu.
- Heiðdís Snorradóttir – Næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu, þar með talið langvinna sjúkdóma. Hefur unnið klínískt starf síðastliðin 4 ár og hefur veitt ráðgjöf í sambandi við næringu bæði til einstaklinga og hópa.
- Lars Óli Jessen – Lýðheilsufræðingur og fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans. Brennur fyrir að bjóða upp á líkams- og heilsurækt fyrir alla, óháð heilsu eða stöðu í samfélaginu.

Sterkari bein - haust 2025
Sterkari Bein er grunnnámskeið í heilsurækt, sérsniðið að fólki með beinþynningu eða minnkaðan beinmassa. Megináherslan er á reglulega líkamsrækt undir handleiðslu íþróttafræðings, auk fyrirlestra hjá næringarfræðingi, innkirtlalækni og íþróttafræðingi. Með reglulegri hreyfingu og fræðslu frá sérfræðingum skapast traustur grunnur að bættri heilsu og lífsgæðum til lengri tíma. Námskeiðið varir í fjóra mánuði og er hugsað sem upphaf að heilsusamlegum lífstíl til frambúðar.
Innifalið í námskeiðinu
Námskeiðið varir í fjóra mánuði: 13 vikur í lokuðum hópi og 4 vikur í framhaldshópi. Á fyrstu þremur mánuðum er lögð áhersla á reglulega hreyfingu, rétta líkamsbeitingu og stigvaxandi æfingaálag samhliða auknum styrk og þoli. Á fyrstu 3 mánuðum fara einnig fram fjórar fræðslur og því er vænst til þess að iðkendur séu tilbúnir til að taka næsta skref á síðasta mánuði námskeiðsins, þar sem iðkendum býðst til að velja á milli ýmissa framhaldshópa í líkamsrækt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Líkamsræktarhluti námskeiðsins fer fram alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13:00–13:50. Lögð er rík áhersla á styrktarþjálfun, þar sem rannsóknir sýna að slík þjálfun er talin heppilegust til að lágmarka líkur á beinbroti. Einnig er unnið markvisst að jafnvægi, liðleika og þoli. Flestir tímar fara fram í lokuðum sal, en einnig er kennd notkun tækja í tækjasal. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn, þannig að þátttakendur geti æft aukalega á eigin vegum ef vilji er fyrir hendi. Fyrstu vikurnar er mælt með að mæta í sem flesta tíma og líta á annað sem viðbót.
Fræðsluhlutinn er í höndum þriggja sérfræðinga, sem halda fjóra fyrirlestra: Tvo hjá næringarfræðingi, einn hjá innkirtlalækni og einn hjá íþróttafræðingi. Hver fyrirlestur tekur um klukkustund og fer fram strax eftir líkamsræktartímann. Þessir fyrirlestrar skipta miklu máli og við hvetjum alla til að mæta á þá alveg eins og í tíma í líkamsræktinni.
Fyrirlestrarnir eru á eftirfarandi fimmtudögum eins og hér segir:
- 4. september kl 14:00 (Vika 2) – “Komum í veg fyrir beinbrot”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 25. september kl 14:00 (Vika 5) – “Næring og orkan í matnum”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
- 16. október kl 14:00 (Vika 8) – “Fjárfesting í góðri heilsu – hvað get ég gert sjálf/ur”, Lars Óli Jessen, íþróttafræðingur
- 6. nóvember kl 14:00 (Vika 11) – “Næring og beinheilsa – hvað spilar saman?”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Upphafs- og lokaviðtal
Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er boðið upp á 30 min upphafsviðtal við íþróttafræðing námskeiðsins, þar sem gerð verður líkamsmæling (sjá nánar hér) og umræða um heilsu iðkanda. Eftir fyrstu þrjá mánuðina er sambærilegt lokaviðtal innifalið, með líkamsmælingu, áður en fjórði og síðasta mánuðurinn hefst.
Fagaðilar námskeiðsins
- Elín Huld Sigurðardóttir – Íþróttafræðingur sem leggur áherslu á jákvæða upplifun af heilsurækt, óháð getu eða markmiðum.
- Sigríður Björnsdóttir – Innkirtla- og efnaskiptalæknir. Vann á Karólínska Sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 15 ár. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem sérfræðingur í offitu og beinþynningu. Unnið bæði í klínískri heilbrigðisþjónustu sem og starfi sem sérfræðingur í beinþynningu og offitu.
- Heiðdís Snorradóttir – Næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu, þar með talið langvinna sjúkdóma. Hefur unnið klínískt starf síðastliðin 4 ár og hefur veitt ráðgjöf í sambandi við næringu bæði til einstaklinga og hópa.
- Lars Óli Jessen – Íþróttafræðingur, lýðheilsufræðingur og fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans. Brennur fyrir að bjóða upp á líkams- og heilsurækt fyrir alla, óháð heilsu eða stöðu í samfélaginu.

60+ grunn námskeið
Fyrstu skrefin í líkamsrækt eru oft erfiðust. Þegar farið er af stað er mikilvægt er að fá kennslu um rétta líkamsbeitingu og eftirfylgni til að vera viss um að æfingar séu rétt framkvæmdar.
Á 60+ grunn námskeiði Heilsuklasans sér íþróttafræðingur bæði um áður nefnda kennslu og eftirfylgni, en aðstoðar einnig hvern og einn iðkanda við að finna hæfilegt álag til að stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Tímar fara fram í hóptímasal þar sem mikið er lagt upp úr kennslu og yfirferð æfinga.
Að loknu námskeiði er markmiðið að iðkendur hafi bæði öðlast líkamlega getu og sömuleiðis lært helstu æfingar nógu vel til að geta skráð sig áfram á 60+ námskeið Heilsuklasans. Grunnurinn að farsælli heilsueflingu til lengri tíma er lagður á 60+ grunn námskeiðinu, sem stuðlar að góðri heilsu og auknum lífsgæðum á efri árum.
Verð fyrir sex vikna 60+ grunn námskeið Heilsuklasans er 25.900 kr. Næsta 60+ grunn námskeið hefst:
- Mánudaginn 18. ágúst, kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 16:30 í sal 2
- Mánudaginn 29. september, kennt mán&mið kl. 16:30 í sal 2

Grunnnámskeið Heilsuklasans
Að koma sér aftur af stað í líkamsrækt eftir langa pásu getur verið krefjandi. Fyrsta skrefið er erfiðast og eðlilega þurfa margir aðstoð við að koma sér af stað. Fagleg aðstoð skiptir máli til að aðstoða þig við að ná þeim markmiðum sem þú sækist eftir.
Grunnnámskeið Heilsuklasans stendur yfir í sex vikur og eru æfingar þrisvar í viku í 50 mínútur í senn. Æfingar eru mánudaga, miðvikudaga og föstudaga undir handleiðslu íþróttafræðings. Kennsla er á réttri líkamsbeytingu og passað upp á að iðkendur framkvæmi æfingar rétt. Álagi er stýrt út frá líkamlegri getu hvers og eins, þannig að allir fái hæfilega krefjandi þjálfun.
Allir á grunnnámskeiðinu fá einnig tveggja daga æfingaáætlun í tækjasal Heilsuklasans. Kort í tækjasal er innifalið í verðinu og því er hægt að mæta í ræktina þá daga sem ekki eru hóptímar og fylgja æfingaáætluninni.
Mikið er lagt upp úr því að gera iðkendur sjálfstæða í hreyfingu. Upplagt framhald að loknu grunnnámskeiði Heilsuklasans er Klúbburinn
Verð fyrir sex vikna Grunnnámskeið Heilsuklasans er 34.900 kr.

Líkamsrækt
Allir eru velkomnir í líkamsrækt Heilsuklasans. Fjölbreytt þjónusta er í boði og hjá okkur geta flestir fundið sína leið að bættri heilsu. Hver og einn iðkandi æfir á eigin forsendum og fagfólk Heilsuklasans sækist eftir því að finna lausnir sem henta best hverju sinni.

Styðjandi sálfræðiþjónusta
Hjá sálfræðiþjónustunni Styðjandi í Heilsuklasanum starfar fjölbreyttur hópur sálfræðinga, sem býr yfir víðtækri fagkunnáttu á sviði meðferðar, ráðgjafar og greiningarvinnu. Boðið er upp á meðferð fyrir einstaklinga og hópa og eru okkar sérsvið meðal annars meðferð við þunglyndi og kvíða, átröskunarvanda, sjálfsmyndarvanda, áföllum, örmögnun og kulnun og langvinnum verkjum.

Sérfræðilæknar
Sérsvið sérfræðilækna Heilsuklasans: Meðferð við offitu, gigt, húð- og kynsjúkdómar, geðlækningar, hjartalækningar barna, ofnæmis- og ónæmislækningar barna.

Stígandi sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfarar Stíganda veita sérhæfða einstaklings- og hópameðferð við verkjum og stoðkerfismeinum.

Önnur fagþjónusta
Ýmsir fagaðilar á sviði heilsu og heilbrigðis starfa í Heilsuklasanum. Má þar nefna næringarfræðing, iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, heyrnarfræðing og markþjálfa.