Stígandi sjúkraþjálfun
Stígandi Sjúkraþjálfun veita sérhæfða einstaklings- og hópameðferð við verkjum og stoðkerfismeinum.
Einstaklingsmeðferð hjá sjúkraþjálfara
Stígandi sjúkraþjálfun leggur mikla áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og gagnreynda meðferð með það að leiðarljósi að ná markmiðum skjólstæðinga okkar.
Gigtarhópur Stíganda
Styrktar- og þolþjálfun í sundlaug og sal fyrir fólk með gigtartengd stoðkerfisvandamál. Regluleg og hæfileg hreyfing er mikilvæg í meðferð gigtarsjúkdóma, þar á meðal liðagigtar, hryggiktar, sóragigtar og slitgigtar.
Meðgöngusund Stíganda
Mömmuþjálfun Stíganda
Þjálfun fyrir mæður eftir barnsburð undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Meðganga, fæðing og tímabilið eftir fæðingu geta verið krefjandi, bæði líkamlega og andlega.
Vatnsþjálfun Stíganda
Stígandi býður upp á vatnsþjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara fyrir fólk með stoðkerfiseinkenni og/eða í endurhæfingu eftir veikindi, meiðsli eða langvinn vandamál.
Stoðleiðir
Stoðleiðir 1-3 eru námskeið á vegum Stíganda sjúkraþjálfunar. Sjúkraþjálfarar kenna alla tíma, alls 8 vikur. Þátttakendur fá fullan aðgang að líkamsrækt Heilsuklasans á meðan námskeiði stendur.