Námskeið hjá Heilsuklasanum
Líkamsrækt á að vera skemmtileg. Þjálfarar námskeiða Heilsuklasans leggja sig alla fram við að hafa hóptíma hressa og á jákvæðu nótunum til að iðkendum hlakki til að koma í næsta tíma. Fjöldi námskeiða eru í boði í líkamsrækt Heilsuklasans og öll eru þau með ólíkar áherslur. Sum eru kröftug, krefjandi og með miklu stuði – á meðan önnur eru rólegri og sérhæfðari fyrir ákveðna hópa. Öll námskeið Heilsuklasans eiga það þó sameiginlegt að stuðla að bættri heilsu iðkenda á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.


60+ grunn námskeið
Fyrstu skrefin í líkamsrækt eru oft erfiðust. Þegar farið er af stað er mikilvægt er að fá kennslu um rétta líkamsbeitingu og eftirfylgni til að vera viss um að æfingar séu rétt framkvæmdar.
Á 60+ grunn námskeiði Heilsuklasans sér íþróttafræðingur bæði um áður nefnda kennslu og eftirfylgni, en aðstoðar einnig hvern og einn iðkanda við að finna hæfilegt álag til að stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Tímar fara fram í hóptímasal þar sem mikið er lagt upp úr kennslu og yfirferð æfinga.
Að loknu námskeiði er markmiðið að iðkendur hafi bæði öðlast líkamlega getu og sömuleiðis lært helstu æfingar nógu vel til að geta skráð sig áfram á 60+ námskeið Heilsuklasans. Grunnurinn að farsælli heilsueflingu til lengri tíma er lagður á 60+ grunn námskeiðinu, sem stuðlar að góðri heilsu og auknum lífsgæðum á efri árum.
Verð fyrir sex vikna 60+ grunn námskeið Heilsuklasans er 25.900 kr. Næsta 60+ grunn námskeið hefst:
- Mánudaginn 18. ágúst, kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 16:30 í sal 2
- Mánudaginn 29. september, kennt mán&mið kl. 16:30 í sal 2

Þjálfun í vatni
Langar þig að stunda líkamsrækt en hræðist hefðbundna hreyfingu sökum verkja sem hún veldur? Hefur þú þurft að hætta að stunda reglulega líkamsrækt vegna óþæginda eða eymsla í stoðkerfi? Þá gæti þjálfun í vatni hentað þér!
Þjálfun í vatni hefur sömu líkamlegu áhrif og æfingar á landi. Styrkur, þol, jafnvægi og liðleiki eru allt þættir sem þjálfun í vatni hefur jákvæð áhrif á. Vatnið dregur úr áhrifum þyngdaraflsins og því koma mun minni högg á liðamót í ökklum, hnjám, mjöðmum og baki. Auk þess dregur vatnið úr áhrifum stirðleika, sem auðveldar ýmsar hreyfingar.
Tímar Heilsuklasans í þjálfun í vatni fara fram í Mörkinni, þar sem gengið er inn um inngang að Suðurlandsbraut 64. Innifalið í verðinu eru tveir tímar í viku í lokuðum hópi, auk korts í tækjasal Heilsuklasans. Tímarnir fara fram á eftirfarandi tímasetningum:
- Mán&mið kl 18:10-18:50 – erfiðleikastig 2 (Hjördís)
- Mán&mið kl 18:50-19:30 – erfiðleikastig 3 (Hjördís)
- Mán&mið kl 19:30-20:10 – erfiðleikastig 4 (Sissa)
- Þri&fim kl 10:15-10:55 – erfiðleikastig 1 (Sissa)
- Þri&fim kl 10:55-11:35 – erfiðleikastig 2 (Sissa)
- Þri&fim kl 11:35-12:15 – erfiðleikastig 3 (Sissa)
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 19.400 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 20.600 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 21.800 kr |
Stakur mánuður | 23.400 kr |

Kvennaleikfimi
Regluleg hreyfing bætir heilsu og líðan. Kvennaleikfimi Heilsuklasans hefur alltaf verið vinsælt námskeið, enda hentar það öllum konum.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar, þar sem boðið er upp á púl og fjör. Erfiðleikastig er miðað út frá getu hvers og eins, því hentar Kvennaleikfimi jafnt hraustum konum sem og þeim sem þurfa að fara varlegar í sakirnar. Þjálfari námskeiðsins er Sigríður Einarsdóttir, sem býr yfir meira en 30 ára reynslu af þjálfun.
Kvennaleikfimin er kennd 3x í viku, þar sem fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans er innifalinn. Tímarnir fara fram á eftirfarandi tímum:
- Mán mið og fös kl 9:00
- Mán, mið og fös kl 16:30
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 19.400 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 20.600 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 21.800 kr |
Stakur mánuður | 23.400 kr |

60+
Þegar við eldumst er enn mikilvægara en áður að viðhalda hreyfingu í rútínu hversdagsins. Með reglulegri hreyfingu á efri árum eru lífsgæði aukin og heilsunni viðhaldið.
Á 60+ námskeiðum Heilsuklasans er áhersla lögð á fjölbreytta þjálfun. Unnið er að bættu þoli og auknum styrk í vinalegu andrúmslofti Heilsuklasans. Í 60+ er einnig sérstök áhersla á jafnvægi og liðleika, þar sem þeir líkamlegu þættir eiga til að dvína með hækkandi aldri ef ekki er unnið markvisst að þeim.
Þjálfarar 60+ námskeiða Heilsuklasans sýna fjölbreyttar útfærslur af æfingum til að hver og einn geti valið erfiðleikastig út frá eigin getu. Einnig ganga þeir á milli iðkenda og leiðbeina eftir þörfum.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Tveir fastir tímar eru fyrir hvern hóp, en fyrir þá sem vilja bæta þriðju æfingunni við þá er opinn 60+ tími á föstudögum kl 11:00.

Zumba
Í Zumba sláum við saman skemmtun og heilsurækt. Þeim sem finnst gaman að dansa geta dansað sig til betri heilsu við hressa tónlist og jákvæða stemningu í Heilsuklasanum.
Þær Hjördís og Marta Zumbakennarar hafa báðar áratuga reynslu af ýmsum gerðum Zumba. Mikið fjör er í tímum hjá þeim báðum og þær sjá til þess að allir dansi og svitni í takt.
- Zumba, kennt á þri&fim kl 18:40-19:30. Kennari hópsins er Marta
Auk þessara tveggja tíma í viku í lokuðum hópi er innifalinn fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans og því sem honum fylgir. Þar á meðal er opinn Zumba tími alla laugardaga kl. 9:30, sem Hjördís og Marta skiptast á að vera með.
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 14.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 15.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 16.800 kr |
Stakur mánuður | 17.900 kr |

Zumba Gold
Í Zumba sláum við saman skemmtun og heilsurækt. Þeim sem finnst gaman að dansa geta dansað sig til betri heilsu við hressa tónlist og jákvæða stemningu í Heilsuklasanum.
Þær Hjördís og Marta Zumbakennarar hafa báðar áratuga reynslu af ýmsum gerðum Zumba. Mikið fjör er í tímum hjá þeim báðum og þær sjá til þess að allir dansi og svitni í takt.
- Zumba Gold (60+), kennt á þri&fim kl 11:00-11:50. Kennari hópsins er Hjördís
Auk þessara tveggja tíma í viku í lokuðum hópi er innifalinn fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans og því sem honum fylgir. Þar á meðal er opinn Zumba tími alla laugardaga kl. 9:30, sem Hjördís og Marta skiptast á að vera með.

Sterkari bein - haust 2025
Sterkari Bein er grunnnámskeið í heilsurækt, sérsniðið að fólki með beinþynningu eða minnkaðan beinmassa. Megináherslan er á reglulega líkamsrækt undir handleiðslu íþróttafræðings, auk fyrirlestra hjá næringarfræðingi, innkirtlalækni og íþróttafræðingi. Með reglulegri hreyfingu og fræðslu frá sérfræðingum skapast traustur grunnur að bættri heilsu og lífsgæðum til lengri tíma. Námskeiðið varir í fjóra mánuði og er hugsað sem upphaf að heilsusamlegum lífstíl til frambúðar.
Innifalið í námskeiðinu
Námskeiðið varir í fjóra mánuði: 13 vikur í lokuðum hópi og 4 vikur í framhaldshópi. Á fyrstu þremur mánuðum er lögð áhersla á reglulega hreyfingu, rétta líkamsbeitingu og stigvaxandi æfingaálag samhliða auknum styrk og þoli. Á fyrstu 3 mánuðum fara einnig fram fjórar fræðslur og því er vænst til þess að iðkendur séu tilbúnir til að taka næsta skref á síðasta mánuði námskeiðsins, þar sem iðkendum býðst til að velja á milli ýmissa framhaldshópa í líkamsrækt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Líkamsræktarhluti námskeiðsins fer fram alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13:00–13:50. Lögð er rík áhersla á styrktarþjálfun, þar sem rannsóknir sýna að slík þjálfun er talin heppilegust til að lágmarka líkur á beinbroti. Einnig er unnið markvisst að jafnvægi, liðleika og þoli. Flestir tímar fara fram í lokuðum sal, en einnig er kennd notkun tækja í tækjasal. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn, þannig að þátttakendur geti æft aukalega á eigin vegum ef vilji er fyrir hendi. Fyrstu vikurnar er mælt með að mæta í sem flesta tíma og líta á annað sem viðbót.
Fræðsluhlutinn er í höndum þriggja sérfræðinga, sem halda fjóra fyrirlestra: Tvo hjá næringarfræðingi, einn hjá innkirtlalækni og einn hjá íþróttafræðingi. Hver fyrirlestur tekur um klukkustund og fer fram strax eftir líkamsræktartímann. Þessir fyrirlestrar skipta miklu máli og við hvetjum alla til að mæta á þá alveg eins og í tíma í líkamsræktinni.
Fyrirlestrarnir eru á eftirfarandi fimmtudögum eins og hér segir:
- 4. september kl 14:00 (Vika 2) – “Komum í veg fyrir beinbrot”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 25. september kl 14:00 (Vika 5) – “Næring og orkan í matnum”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
- 16. október kl 14:00 (Vika 8) – “Fjárfesting í góðri heilsu – hvað get ég gert sjálf/ur”, Lars Óli Jessen, íþróttafræðingur
- 6. nóvember kl 14:00 (Vika 11) – “Næring og beinheilsa – hvað spilar saman?”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Upphafs- og lokaviðtal
Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er boðið upp á 30 min upphafsviðtal við íþróttafræðing námskeiðsins, þar sem gerð verður líkamsmæling (sjá nánar hér) og umræða um heilsu iðkanda. Eftir fyrstu þrjá mánuðina er sambærilegt lokaviðtal innifalið, með líkamsmælingu, áður en fjórði og síðasta mánuðurinn hefst.
Fagaðilar námskeiðsins
- Elín Huld Sigurðardóttir – Íþróttafræðingur sem leggur áherslu á jákvæða upplifun af heilsurækt, óháð getu eða markmiðum.
- Sigríður Björnsdóttir – Innkirtla- og efnaskiptalæknir. Vann á Karólínska Sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 15 ár. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem sérfræðingur í offitu og beinþynningu. Unnið bæði í klínískri heilbrigðisþjónustu sem og starfi sem sérfræðingur í beinþynningu og offitu.
- Heiðdís Snorradóttir – Næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu, þar með talið langvinna sjúkdóma. Hefur unnið klínískt starf síðastliðin 4 ár og hefur veitt ráðgjöf í sambandi við næringu bæði til einstaklinga og hópa.
- Lars Óli Jessen – Íþróttafræðingur, lýðheilsufræðingur og fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans. Brennur fyrir að bjóða upp á líkams- og heilsurækt fyrir alla, óháð heilsu eða stöðu í samfélaginu.

Léttara líf - haust 2025
Léttara Líf er grunnnámskeið í heilsurækt, sérstaklega ætlað fólki sem lifir með offitu og fylgikvillum þess. Megináhersla er á reglubundna líkamsrækt undir handleiðslu íþróttafræðings, auk fræðslufyrirlestra hjá innkirtlalækni og næringarfræðingi. Námskeiðið er opið öllum, hvort sem það er sótt eitt og sér eða samhliða öðrum meðferðum, svo sem meðferð með þyngdarstjórnunarlyfjum (t.d. Wegovy eða Ozempic) eða eftir skurðaðgerð vegna offitu.
Með því að sameina reglulega hreyfingu og fræðslu við aðrar meðferðir er lagður traustur grunnur að bættri heilsu og auknum lífsgæðum til lengri tíma. Námskeiðið stendur yfir í fjóra mánuði og markmiðið er að leggja fystu drög að heilsusamlegum lífsstíl til frambúðar. Mikilvægt er að líta á heilsurækt sem langvarandi verkefni en ekki einungis skammtímalausn.
Innifalið í námskeiðinu
Námskeiðið varir í fjóra mánuði og skiptist í 13 vikur í lokuðum hópi og 4 vikur í framhaldshópi. Á fyrstu þremur mánuðunum er lagður traustur grunnur að reglulegri hreyfingu, með áherslu á rétta líkamsbeitingu og stigvaxandi æfingaálag sem eykst samhliða auknum styrk og bættu þoli. Auk þess fara fram fjórar fræðslur sem styðja við þátttakendur í að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl. Í síðasta mánuðinum velja iðkendur síðan framhaldshóp sem hentar þeirra áherslum og markmiðum.
Líkamsræktarhluti námskeiðsins er kenndur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 18:30-19:20. Tímarnir fara almennt fram í lokuðum sal, en einnig er kennd notkun æfingartækja í tækjasal. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn, og kennslan miðar að því að þáttakendur læri á tækin og búnaðinn svo þeir geti mætt á eigin vegum ef vilji er fyrir hendi. Fyrstu vikurnar er þó mælt með að einbeita sér að mæta í sem flesta tíma og líta á frekari mætingu í ræktina sem viðbót.
Fræðsluhluti námskeiðsins felur í sér fjóra fyrirlestra, tveir hjá innkirtlalækni og tveir hjá næringarfræðingi. Hver fyrirlestur tekur um klukkustund og hefst rúmum klukkutíma áður en líkamsræktartíminn byrjar, svo auðvelt er að mæta beint af fyrirlestri í ræktina. Fyrirlestrarnir skipta miklu máli og við hvetjum alla til að sækja þá.
Fyrirlestrarnir eru á eftirfarandimánudögumeins og hér segir:
- 1. september kl 17:15 (Vika 2) – “Fjárfesting í góðri heilsu – almennt um offitu”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 22. september kl 17:15 (Vika 5) – “Mataræðið sem ein heild”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
- 13. október kl 17:15 (Vika 8) – “Fjárfesting í góðri heilsu – hvað get ég gert sjálf/ur”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
- 3. nóvember kl 17:15 (Vika 11) – “Heilbrigt samband við mat”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Upphafs- og lokaviðtal
Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er boðið upp á 30 min upphafsviðtal við íþróttafræðing námskeiðsins, þar sem gerð verður líkamsmæling (sjá nánar hér) og umræða um heilsu iðkanda. Eftir fyrstu þrjá mánuðina er sambærilegt lokaviðtal innifalið, með líkamsmælingu, áður en fjórði og síðasta mánuðurinn hefst.
Fagaðilar námskeiðsins
- Saadia Auður Dhour – Íþróttafræðingur með margra ára reynslu. Leggur áherslu á jákvæða upplifun af heilsurækt, óháð getu eða markmiðum.
- Sigríður Björnsdóttir – Innkirtla- og efnaskiptalæknir. Vann á Karólínska Sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 15 ár. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem sérfræðingur í offitu og beinþynningu. Unnið bæði í klínískri heilbrigðisþjónustu sem og starfi sem sérfræðingur í beinþynningu og offitu.
- Heiðdís Snorradóttir – Næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu, þar með talið langvinna sjúkdóma. Hefur unnið klínískt starf síðastliðin 4 ár og hefur veitt ráðgjöf í sambandi við næringu bæði til einstaklinga og hópa.
- Lars Óli Jessen – Lýðheilsufræðingur og fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans. Brennur fyrir að bjóða upp á líkams- og heilsurækt fyrir alla, óháð heilsu eða stöðu í samfélaginu.

Einkaþjálfun
Fyrir þá sem vilja vera handvissir um að þjálfunin sé eins og best verður á kosið, þá er einkaþjálfun vænlegasti kosturinn. Þar er mikið aðhald og þú færð þinn eigin þjálfara til að halda utan um þjálfunina, segja þér hvaða æfingar á að gera, hvenær, hvernig og hversu lengi. Íþróttafræðingar Heilsuklasans hafa allir góða þekkingu á hreyfingu, mataræði og öðrum þáttum sem hafa áhrif á heilsu fólks. Þjálfarinn getur því veitt ráðgjöf um heilsusamlegan lífsstíl, á sama tíma og hann fylgir þér alla æfinguna.
Vilt þú að þjálfarinn sjái um að skipuleggja hverja einustu æfingu? Vilt þú finna öryggið sem fylgir því að þjálfari sýnir þér og fylgist svo með öllum þínum hreyfingum? Vilt þú fá ráðleggingar um aðra þætti heilsu á sama tíma? Þá er einkaþjálfun í Heilsuklasanum fullkomin fyrir þig.
Innifalið í einkaþjálfun er fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans í mánuð. Á þeim tíma hittir þú íþróttafræðing í 4 vikur, þar sem hann fylgir þér hvert skref.
Bókaðu einkaþjálfun með því að senda póst á mottaka@klasinn.is. Þú færð svo símtal frá íþróttafræðingi Heilsuklasans sem bókar þig í fyrsta tímann.
30 min 2x í viku | 62.900 kr |
30 min 3x í viku | 86.900 kr |
60 min 2x í viku | 109.900 kr |
60 min 3x í viku | 157.900 kr |
Hægt er að fá hagstæðari kjör ef tveir skrá sig saman í einkaþjálfun, sjá nánar hér

Einkaþjálfun, 2 saman
Fyrir þá sem vilja vera handvissir um að þjálfunin sé eins og best verður á kosið, þá er einkaþjálfun vænlegasti kosturinn. Þar er mikið aðhald og þú færð þinn eigin þjálfara til að halda utan um þjálfunina, segja þér hvaða æfingar á að gera, hvenær, hvernig og hversu lengi. Íþróttafræðingar Heilsuklasans hafa allir góða þekkingu á hreyfingu, mataræði og öðrum þáttum sem hafa áhrif á heilsu fólks. Þjálfarinn getur því veitt ráðgjöf um heilsusamlegan lífsstíl, á sama tíma og hann fylgir þér alla æfinguna.
Vilt þú að þjálfarinn sjái um að skipuleggja hverja einustu æfingu? Vilt þú finna öryggið sem fylgir því að þjálfari sýnir þér og fylgist svo með öllum þínum hreyfingum? Vilt þú fá ráðleggingar um aðra þætti heilsu á sama tíma? Þá er einkaþjálfun í Heilsuklasanum fullkomin fyrir þig.
Innifalið í einkaþjálfun er fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans í mánuð. Á þeim tíma hittir þú íþróttafræðing í 4 vikur, þar sem hann fylgir þér hvert skref.
Bókaðu einkaþjálfun með því að senda póst á mottaka@klasinn.is. Þú færð svo símtal frá íþróttafræðingi Heilsuklasans sem bókar þig í fyrsta tímann.
30 min 2x í viku | 74.900 kr (37.450kr á mann) |
30 min 3x í viku | 98.900 kr (49.450kr á mann) |
60 min 2x í viku | 121.900 kr (60.950kr á mann) |
60 min 3x í viku | 169.900 kr (84.950kr á mann) |

Gull æfingaáætlun
Margir kjósa að æfa sjálfir í tækjasal á tímum sem henta hverju sinni. Því fylgir ákveðið frelsi að vera ekki bundinn ákveðnum tímasetningum og geta mætt eftir eigin hentugleika. Þegar æft er án þjálfara skiptir máli að vita hvaða æfingar er æskilegt að framkvæma, hversu oft, hversu lengi, hversu þungt, hvað á að forðast o.s.frv.
Vilt þú æfingaáætlun sem sett er upp út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegri getu og þínu áhugasviði? Fáðu íþróttafræðing Heilsuklasans til að leiðbeina þér og setja upp æfingaáætlun sem hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú sækist eftir. Æfingaáætluninni er svo fylgt eftir og farið yfir hvort æfingarnar henti, hvort rifja þurfi upp æfingar og mögulega gera lítillegar breytingar á æfingaáætluninni. Þú hittir því þjálfarann þinn aðra hverja viku í 3 mánuði, til að fullvissa um að allt sé eins og það á að vera.
Verð fyrir Gull æfingaáætlun er 88.800 kr, eða 29.600 kr á mánuði í þrjá mánuði. Innifalið í verðinu er:
- Símaviðtal við íþróttafræðing
- Uppsetning einstaklingsmiðaðrar æfingaáætlunar
- Klukkutíma kennsla á æfingaáætlunina
- Sex hálftíma tímar í eftirfylgni
- Reglulegar mælingar á líkamsgreiningartæki
- Þriggja mánaða kort í líkamsrækt Heilsuklasans
Hægt er að bóka Gull æfingaáætlun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Silfur æfingaáætlun
Margir kjósa að æfa sjálfir í tækjasal á tímum sem henta hverju sinni. Því fylgir ákveðið frelsi að vera ekki bundinn ákveðnum tímasetningum og geta mætt eftir eigin hentugleika. Þegar æft er án þjálfara skiptir máli að vita hvaða æfingar er æskilegt að framkvæma, hversu oft, hversu lengi, hversu þungt, hvað á að forðast o.s.frv.
Vilt þú æfingaáætlun sem sett er upp út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegri getu og þínu áhugasviði? Fáðu íþróttafræðing Heilsuklasans til að leiðbeina þér og setja upp æfingaáætlun sem hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú sækist eftir. Æfingaáætluninni er svo fylgt eftir og farið yfir hvort æfingarnar henti, hvort rifja þurfi upp æfingar og mögulega gera lítillegar breytingar á æfingaáætluninni.
Verð fyrir Silfur æfingaáætlun er 41.900 kr. Innifalið í verðinu er:
- Símaviðtal við íþróttafræðing
- Uppsetning einstaklingsmiðaðrar æfingaáætlunar
- Klukkutíma kennsla á æfingaáætlunina
- Tveir hálftíma tímar í eftirfylgni
- Mæling á líkamsgreiningartæki
- Mánaðarkort í líkamsrækt Heilsuklasans
Hægt er að bóka Silfur æfingaáætlun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Brons æfingaáætlun
Margir kjósa að æfa sjálfir í tækjasal á tímum sem henta hverju sinni. Því fylgir ákveðið frelsi að vera ekki bundinn ákveðnum tímasetningum og geta mætt eftir eigin hentugleika. Þegar æft er án þjálfara skiptir máli að vita hvaða æfingar er æskilegt að framkvæma, hversu oft, hversu lengi, hversu þungt, hvað á að forðast o.s.frv.
Vilt þú æfingaáætlun sem sett er upp út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegri getu og þínu áhugasviði? Fáðu íþróttafræðing Heilsuklasans til að leiðbeina þér og setja upp æfingaáætlun sem hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú sækist eftir.
Verð fyrir Brons æfingaáætlun er 29.900 kr. Innifalið í verðinu er:
- Símaviðtal við íþróttafræðing
- Uppsetning einstaklingsmiðaðrar æfingaáætlunar
- Klukkutíma kennsla með þjálfara á æfingaáætlunina
- Mæling á líkamsgreiningartæki
- Mánaðarkort í líkamsrækt Heilsuklasans
Hægt er að bóka Brons æfingaáætlun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Heilsumat
Heilsumat Heilsuklasans
Vilt þú bæta heilsuna? Veistu ekki hvað þú átt að gera eða hvar þú átt að byrja? Þá gæti Heilsumat Heilsuklasans verið fullkomið fyrsta skref fyrir þig!
Heilsumat Heilsuklasans er stakur tími með íþróttafræðingi. Þar fer fram mæling á líkamsgreiningartæki, framkvæmdar eru ýmsar æfingar til að mæla líkamleg afköst og loks yfirferð matardagbókar til að sjá mynstur í fæðuinntöku. Allar mælingar eru með sannreyndum stöðluðum gildum, svo skýrt sé hvað niðurstaðan þýðir. Á líkamsgreiningartækinu er þyngd, vöðvamassi, fituprósenta, kviðfita, vökvamagn o.fl. mælt. Allar niðurstöður liggja strax fyrir og í lok tímans er viðtal þar sem farið er yfir niðurstöðurnar og sömuleiðis boðið upp á stutta næringarráðgjöf. Einnig fylgir vikupassi í líkamsrækt Heilsuklasans, þar sem val er á milli þess að vera í tækjasalnum eða fara á námskeið sem hentar miðað við áður nefndar niðurstöður.
Fyrir tímann
Til að fá sem mest út úr næringarráðgjöfinni mælum við með því að áður en tíminn fer fram skrifi viðkomandi niður í 2-3 daga hvað er borðað, sirka hversu mikið og á hvaða tíma hver máltíð er. Óþarfi er að mæla matinn nákvæmlega og gott er að skrá niður hefðbundna daga. Þetta er gert til að sjá mynstur í matarvenjum hversdagsins, svo betur sé hægt að benda á hvað betur má fara. Hvorki borða né drekka síðasta klukkutímann áður en tíminn fer fram, þar sem það myndi skekkja niðurstöður líkamsgreiningartækisins. Æskilegt er að mæta í þægilegum fatnaði sem hentar vel til hreyfingar og í góðum skóm.
Innifalið
- Klukkutíma tími með íþróttafræðingi
- Mæling á líkamsgreiningartæki
- Styrktarmæling fyrir efri líkama
- Styrktarmæling fyrir neðri líkama
- Liðleikamæling fyrir efri líkama
- Liðleikamæling fyrir neðri líkama
- Þolmæling
- Yfirferð matardagbókar
- Viðkomandi fær afhendar allar niðurstöður Heilsumatsins
- Vikupassi í tækjasal eða á námskeið sem hentar
Hægt er að bóka Heilsumat í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Líkamsmæling
Líkamsmæling
Rétt hvatning spilar stórt hlutverk í að viðhalda æskilegri heilsuhegðun. Fyrir þá sem vilja sjá tölur sem sýna skýrt hvað er að gerast í líkamanum yfir tímabil er regluleg eftirfylgni lykilatriði. Þessar tölur færðu í Líkamsmælingu hjá Heilsuklasanum, þar sem farið er á líkamsgreiningartæki sem gefur niðurstöður um:
- Þyngd
- Fituprósentu
- Fitumassa
- Vöðvamassa
- Vökvahlutfall líkamans
- Grunn brennslu
- Innri kviðfitu
- Dreifngu vöðvamassa
- Dreifingu fitumassa
Farið er yfir hvað tölurnar þýða, hvað æskilegt væri að vinna í og hver næstu skref ættu að vera. Um er að ræða 20 mínútna tíma hjá íþróttafræðingi þar sem farið er yfir þau markmið sem þú hefur um heilsu, líðan, þyngd eða annað og hvaða leiðir við mælum með til að komast nær þeim markmiðum.
Fyrir tímann
Líkamsgreiningartækið mælir rafleiðni líkamans, þar sem rafleiðni er mis mikil í vöðvum (vatnsríkir vefir) og fituvef (vatssnauðir vefir). Til að lágmarka skekkjur er mælt gegn því að borða og drekka síðasta klukkutímann fyrir mælingu. Hafa ber í huga að ýmis atriði eins og tími dags, síðasta máltíð, koffein, tíðahringur kvenna o.fl. hefur áhrif á niðurstöður mælinga. Því skiptir máli fyrir þá sem vilja koma reglulega í mælingu (t.d. á 1-3 mánaða fresti) að hafa aðstæður eins líkar og kostur er á.
Annað
Iðkendur Heilsuklasans fá 20% afslátt.
Hægt er að bóka Líkamsmælingu í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Gull fjarþjálfun
Fyrir þá sem vilja æfa sjálfstætt en hafa sinn eigin þjálfara til stuðnings, þá hentar Gull fjarþjálfun vel. Íþróttafræðingur setur upp æfingaáætlun fyrir þig út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegu heilsu og þinni aðstöðu til æfinga. Næstu þrjá mánuði er þér svo fylgt eftir með reglulegum símaviðtölum, þar sem æfingaálagi er stýrt stigavaxandi til að bæta líkamlega heilsu og auka lífsgæði.
Viðkomandi æfir sjálfur á tímum og stað sem honum hentar. Á tveggja vikna fresti á fyrirfram ákveðnum tímum yfir þriggja mánaða tímabil hringir þjálfari í iðkanda, þar sem farið er yfir hvernig hefur gengið og framhaldið metið. Þá er alltaf hægt að uppfæra æfingaáætlunina út frá stöðunni hverju sinni þannig að iðkandi fái sem mest út úr þjálfuninni. Gull fjarþjálfun hentar vel þeim sem vilja æfa sjálfir, en þó undir handleiðslu fagaðila.
Innifalið í þjónustu
• Símaviðtal í upphafi við íþróttafræðing þar sem farið er yfir líkamlega heilsu, markmið, æfingaaðstöðu, fyrirkomulag þjálfunar o.fl.
• Uppsetning æfingaáætlunar með 2-3 mismunandi æfingadögum í samræmi við það sem ákveðið var í sameiningu í símaviðtali.
• 1x 60 min myndsímtal þar sem farið er yfir hverja einustu æfingu á æfingaáætlun, iðkandi prufar allar æfingar og gengið úr skugga um að æfingaáætlunin sé skýr.
• 6x 30 min símaviðtal með tveggja vikna millibili þar sem farið er yfir hvernig hefur gengið, hvort gera eigi einhverjar breytingar á æfingaáætlun o.fl.
Verð
Þriggja mánaða fjarþjálfun kosta 62.700 kr, þar sem í boði er að skipta greiðslum og greiða þá 20.900 kr á mánuði. Hægt er að byrja hvenær sem er og taka heilsuna föstum tökum með Gull fjarþjálfun.
Hægt er að panta Gull fjarþjálfun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.

Grunnnámskeið Heilsuklasans
Að koma sér aftur af stað í líkamsrækt eftir langa pásu getur verið krefjandi. Fyrsta skrefið er erfiðast og eðlilega þurfa margir aðstoð við að koma sér af stað. Fagleg aðstoð skiptir máli til að aðstoða þig við að ná þeim markmiðum sem þú sækist eftir.
Grunnnámskeið Heilsuklasans stendur yfir í sex vikur og eru æfingar þrisvar í viku í 50 mínútur í senn. Æfingar eru mánudaga, miðvikudaga og föstudaga undir handleiðslu íþróttafræðings. Kennsla er á réttri líkamsbeytingu og passað upp á að iðkendur framkvæmi æfingar rétt. Álagi er stýrt út frá líkamlegri getu hvers og eins, þannig að allir fái hæfilega krefjandi þjálfun.
Allir á grunnnámskeiðinu fá einnig tveggja daga æfingaáætlun í tækjasal Heilsuklasans. Kort í tækjasal er innifalið í verðinu og því er hægt að mæta í ræktina þá daga sem ekki eru hóptímar og fylgja æfingaáætluninni.
Mikið er lagt upp úr því að gera iðkendur sjálfstæða í hreyfingu. Upplagt framhald að loknu grunnnámskeiði Heilsuklasans er Klúbburinn
Verð fyrir sex vikna Grunnnámskeið Heilsuklasans er 34.900 kr.

Klúbburinn
Regluleg hreyfing bætir árum við lífið og lífi í árin. Mikil áhersla er lögð á það í Klúbbnum að allir stýri álagi út frá eigin getu og því hentar námskeiðið fyrir alla sem hafa ákveðinn grunn í hreyfingu.
Fjölbreytt þjálfun einkennir tíma í Klúbbnum. Æfingar bjóða upp á háa ákefð fyrir þá sem vilja taka vel á því, en einnig bjóða þjálfarar námskeiðsins upp á einfaldari og auðveldari útfærslur æfinga. Klúbburinn er einstaklingsmiðuð hópaþjálfun sem hentar öllum sem þurfa ekki mikla sérhæfingu.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Inn af búningsklefa er notalegt slökunarsvæði, sem inniheldur heitan pott og sauna. Klúbburinn er kenndur á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum á átta tímasetningum. Iðkendur skrá sig í einhvern þeirra hópa en er frjálst að mæta á öðrum tímum þegar það hentar.
Tímasetningarnar eru eftirfarandi:
- 6:15 (Snær)
- 7:15 (Snær)
- 9:00 Kvennaleikfimi (Sigríður)
- 12:10 (Sigríður)
- 14:00 (Ingunn)
- 16:30 Kvennaleikfimi (Saadia)
- 17:30 (Ingunn í sal 3)
- 17:30 (Saadia í sal 1)
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu
|
19.400 kr
|
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti
|
20.600 kr
|
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests
|
21.800 kr
|
Stakur mánuður
|
23.400 kr
|

Líkami og hugur
Líkami og hugur er grunn námskeið fyrir þá sem glíma við einkenni kvíða, þunglyndis og/eða streitu. Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur þar sem mikið er lagt upp úr að mynda andrúmsloft þar sem öllum líður vel og hver og einn vinnur út frá eigin getu. Námskeiðið er tvískipt, þar sem hreyfing er 3x í viku og Jóga Nidra 1x í viku.
Innifalið í námskeiðinu
Líkamsræktarhluti námskeiðsins er kenndur þrisvar sinnum í viku í 50 mínútur í senn. Tímarnir fara fram þegar almennt er rólegt í líkamsræktinni, kl 13:00-13:50 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Unnið er út frá hreyfiseðli, sem er viðurkennt meðferðarúrræði við sjúkdómum eða einkennum þeirra sjúkdóma sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á – þar á meðal er ýmis andleg vanlíðan. Iðkendum er mætt á eigin forsendum og lagt er upp úr því að andrúmsloft sé þægilegt þar sem allir eru velkomnir og öllum getur liðið vel. Einnig er innifalinn fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans meðan á námskeiðinu stendur.
Jóga Nidra hluti námskeiðsins fer fram á mánudögum eða miðvikudögum, í beinu framhaldi af líkamsræktinni kl 14:00-15:00. Jóga Nidra samanstendur af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum, þar sem við förum frá hinu ytra inn í djúpt slökunarástand. Þannig lærum við smám saman að takast á við álag með kyrrari huga sem dregur úr streitu og kvíða. Iðkendur aftengjast hugsunum sínum og virkja slökunarviðbragð líkamans, sem leiðir okkur inn í djúpa hvíld sem svipar til svefns. Jóga Nidra fer þannig fram að í upphafi hvers tíma er stutt fræðsla um Jóga Nidra og þætti sem hafa áhrif á andlega og líkamlega líðan. Þá eru gerðar nokkrar einfaldar jógaæfingar eða teygjur og loks fer hugleiðslan fram í liggjandi stöðu á dýnu á gólfinu undir teppi.
Þjálfarar námskeiðsins
Lars Óli Jessen, íþróttafræðingur
Sigríður Einarsdóttir, íþróttafræðingur
Ingunn Kristjana Þorkelsdóttir, íþróttafræðingur
Jóhanna Björk Briem, jógakennari

Jóga Nidra
Jóga Nidra er leidd hugleiðsla sem kallast öðru nafni „jógískur svefn”. Þar aftengjumst við hugsunum okkar, virkjum slökunarviðbragð líkamans sem leiðir okkur inn í djúpa hvíld sem svipar til svefns.
Jóga Nidra samanstendur af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum þar sem við förum frá hinu ytra inn í djúpt slökunarástand. Þannig lærum við smám saman að takast á við álag með kyrrari huga sem dregur úr streitu og kvíða.
Jóga Nidra fer þannig fram að í upphafi eru gerðar nokkrar einfaldar jógaæfingar eða teygjur og síðan fer hugleiðslan fram í liggjandi stöðu á dýnu undir teppi. Hver tími stendur yfir í klukkutíma. Kennari námskeiðsins er Jóhanna Björk Briem, sem meðal annars er jógakennari, sjúkranuddari og með M.A. í forvörnum og áhættuhegðun.
Námskeiðið fer fram 1x í viku (mánudaga kl 14 eða miðvikudaga kl 14) og stendur yfir í 8 vikur. Einnig er fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans innifalinn í námskeiðsverði.

Kort í tækjasal
Tækjasalurinn er rúmgóður og bjartur og býður upp á fjölbreyttar æfingar þar sem til staðar eru ýmis tæki, lóð, stangir, pallar, rimlar, dýnur o.fl. Einnig er notalegur teygjusalur þar sem hægt er að gera léttari æfingar og/eða slaka á og teygja eftir æfingu.
Inn af búningsklefum er hægt að fara bæði í heitan pott og sauna. Umhverfið er sérstaklega notalegt og um að gera að slaka þar á eftir góða æfingu.
Opnunartími líkamsræktarinnar er eftirfarandi:
- Virka daga 6:00-19:50
- Laugardaga 7:30-13:50
- Sunnudaga 10:00-13:50
* Að loknum bindingartíma breytist áskrift sjálfkrafa í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti.
**Uppsögn innan sama mánaðar og kaupdagur, tekur gildi frá þarnæstu mánaðarmótum á eftir uppsögn.