60+ grunnnámskeið
Umsjón
Dagsetningar
25. ágú. 2026 - 1. okt. 2026
Verð
Fyrstu skrefin í líkamsrækt eru oft erfiðust. Þegar farið er af stað er mikilvægt er að fá kennslu um rétta líkamsbeitingu og eftirfylgni til að vera viss um að æfingar séu rétt framkvæmdar.
Á 60+ grunnnámskeiði Heilsuklasans sér íþróttafræðingur bæði um áður nefnda kennslu og eftirfylgni, en aðstoðar einnig hvern og einn iðkanda við að finna hæfilegt álag til að stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Tímar fara fram í hóptímasal þar sem mikið er lagt upp úr kennslu og yfirferð æfinga.
60+ grunnnámskeið Heilsuklasans stendur yfir í 6 vikur og eru tvisvar í viku í 50 mínútur í senn. Æfingarnar eru þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:30-17:20 undir handleiðslu íþróttafræðings.
Að loknu námskeiði er markmiðið að iðkendur hafi bæði öðlast líkamlega getu og sömuleiðis lært helstu æfingar nógu vel til að geta skráð sig áfram á 60+ námskeið Heilsuklasans. Grunnurinn að farsælli heilsueflingu til lengri tíma er lagður á 60+ grunn námskeiðinu, sem stuðlar að góðri heilsu og auknum lífsgæðum á efri árum.