60+
Þegar við eldumst er enn mikilvægara en áður að viðhalda hreyfingu í rútínu hversdagsins. Með reglulegri hreyfingu á efri árum eru lífsgæði aukin og heilsunni viðhaldið.
Á 60+ námskeiðum Heilsuklasans er áhersla lögð á fjölbreytta þjálfun. Unnið er að bættu þoli og auknum styrk í vinalegu andrúmslofti Heilsuklasans. Í 60+ er einnig sérstök áhersla á jafnvægi og liðleika, þar sem þeir líkamlegu þættir eiga til að dvína með hækkandi aldri ef ekki er unnið markvisst að þeim.
Þjálfarar 60+ námskeiða Heilsuklasans sýna fjölbreyttar útfærslur af æfingum til að hver og einn geti valið erfiðleikastig út frá eigin getu. Einnig ganga þeir á milli iðkenda og leiðbeina eftir þörfum.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Tveir fastir tímar eru fyrir hvern hóp, en fyrir þá sem vilja bæta þriðju æfingunni við þá eru opnir 60+ tímar á föstudögum kl 10:00 og 11:00.
Tímarnir fara fram á eftirfarandi tímasetningum:
Mán&mið kl. 10:00
Mán&mið kl. 11:00
Mán&mið kl. 16:30
Þri&fim kl. 09:00
Þri&fim kl. 10:00
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 16.390 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 17.590 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 18.790 kr |
Stakur mánuður | 20.190 kr |