Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði
Sund, Ung Fólk, Myndir Til Að Nota (1)

Jóga Nidra

Dagsetningar

6. maí 2026 - 24. jún. 2026

1. jún. 2026 - 20. júl. 2026

8. júl. 2026 - 26. ágú. 2026

7. ágú. 2026 - 28. sep. 2026

9. sep. 2026 - 28. okt. 2026

5. okt. 2026 - 23. nóv. 2026

4. nóv. 2026 - 23. des. 2026

30. nóv. 2026 - 25. jan. 2027

6. jan. 2027 - 24. feb. 2027

1. feb. 2027 - 22. mar. 2027

Verð

32.600 kr.

Jóga Nidra er leidd hugleiðsla sem kallast öðru nafni „jógískur svefn”. Þar aftengjumst við hugsunum okkar, virkjum slökunarviðbragð líkamans sem leiðir okkur inn í djúpa hvíld sem svipar til svefns.

Jóga Nidra samanstendur af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum þar sem við förum frá hinu ytra inn í djúpt slökunarástand. Þannig lærum við smám saman að takast á við álag með kyrrari huga sem dregur úr streitu og kvíða.

Jóga Nidra fer þannig fram að í upphafi eru gerðar nokkrar einfaldar jógaæfingar eða teygjur og síðan fer hugleiðslan fram í liggjandi stöðu á dýnu undir teppi. Hver tími stendur yfir í klukkutíma. Kennari námskeiðsins er Guðrún Theodóra, jógakennari með áratuga reynslu.

Námskeiðið fer fram 1x í viku (mánudaga kl 14 eða miðvikudaga kl 14) og stendur yfir í 8 vikur. Einnig er fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans innifalinn í námskeiðsverði.​