Orka og mýkt
Dans - djúpar teygjur - bandvefslosun - slökun
Frá orku í mýkt og ró
Á þessu nýja námskeiði mun Marta Ruth blanda saman Zumba dansi, djúpum teygjum, bandvefslosun og slökun í lokin. Mikil orka og gleði einkennir fyrri helming tímans, en í seinni helming hvers tíma verður meira um liðkandi og slakandi æfingar.
Fjölbreyttir 75min tímar þar sem við sameinum skemmtilega hreyfingu við markvissa liðleikaþjálfun, bandvefsnudd og slökun. Engin dansreynsla nauðsynleg og tímarnir ættu að geta hentað öllum þar sem hver og einn vinnur út frá eigin getu.
Tímarnir fara fram á miðvikudögum kl 18:30-19:45 í sal 3. Þjálfari hópsins er Marta Ruth.
Námskeiðið fer af stað miðvikudaginn 21. október og fyrstu tveir tímarnir eru fríir kynningartímar. Til að skrá sig í kynningartíma skal senda póst á lars@klasinn.is.