Silfur æfingaáætlun
Margir kjósa að æfa sjálfir í tækjasal á tímum sem henta hverju sinni. Því fylgir ákveðið frelsi að vera ekki bundinn ákveðnum tímasetningum og geta mætt eftir eigin hentugleika. Þegar æft er án þjálfara skiptir máli að vita hvaða æfingar er æskilegt að framkvæma, hversu oft, hversu lengi, hversu þungt, hvað á að forðast o.s.frv.
Vilt þú æfingaáætlun sem sett er upp út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegri getu og þínu áhugasviði? Fáðu íþróttafræðing Heilsuklasans til að leiðbeina þér og setja upp æfingaáætlun sem hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú sækist eftir. Æfingaáætluninni er svo fylgt eftir og farið yfir hvort æfingarnar henti, hvort rifja þurfi upp æfingar og mögulega gera lítillegar breytingar á æfingaáætluninni.
Verð fyrir Silfur æfingaáætlun er 44.990 kr. Innifalið í verðinu er:
Símaviðtal við íþróttafræðing
Uppsetning einstaklingsmiðaðrar æfingaáætlunar
Klukkutíma kennsla á æfingaáætlunina
Tveir hálftíma tímar í eftirfylgni
Mæling á líkamsgreiningartæki
Mánaðarkort í líkamsrækt Heilsuklasans
Hægt er að bóka Silfur æfingaáætlun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.