Sterkari bein
Umsjón
Sterkari Bein er grunnnámskeið í heilsurækt, sérsniðið að fólki með beinþynningu eða minnkaðan beinmassa. Megináherslan er á reglulega líkamsrækt undir handleiðslu íþróttafræðings, auk fyrirlestra hjá næringarfræðingi, innkirtlalækni og íþróttafræðingi. Með reglulegri hreyfingu og fræðslu frá sérfræðingum skapast traustur grunnur að bættri heilsu og lífsgæðum til lengri tíma. Námskeiðið varir í fjóra mánuði og er hugsað sem upphaf að heilsusamlegum lífstíl til frambúðar.
Innifalið í námskeiðinu
Námskeiðið varir í fjóra mánuði og skiptist í 13 vikur í lokuðum hópi og 4 vikur í framhaldshópi. Á fyrstu þremur mánuðunum er lagður traustur grunnur að reglulegri hreyfingu, með áherslu á rétta líkamsbeitingu og stigvaxandi æfingaálag sem eykst samhliða auknum styrk og bættu þoli. Auk þess fara fram fjórar fræðslur sem styðja við þátttakendur í að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl. Í síðasta mánuðinum velja iðkendur síðan framhaldshóp sem hentar þeirra áherslum og markmiðum.
Líkamsræktarhluti námskeiðsins er kenndur þriðjudaga og fimmtudaga. Hádegistímarnir fara alltaf fram kl 12:00-12:50, en kvöldhópurinn er kenndur kl 17:30-18:20. Tímarnir fara almennt fram í lokuðum sal, en einnig er kennd notkun æfingartækja í tækjasal og allir iðkendur fá alhliða æfingaáætlun til að fylgja í sal fyrir þá sem vilja mæta sjálfir aukalega í ræktina. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn, og kennslan miðar að því að þáttakendur læri á tækin og búnaðinn svo þeir geti mætt á eigin vegum ef vilji er fyrir hendi. Fyrstu vikurnar er þó mælt með að einbeita sér að mæta í sem flesta tíma og líta á frekari mætingu í ræktina sem viðbót.
Fræðsluhluti námskeiðsins felur í sér fjóra fyrirlestra, tveir hjá næringarfræðingi, einn hjá innkirtlalækni og einn hjá íþróttafræðingi. Hver fyrirlestur tekur um klukkustund, hefst kl. 13:00 og fer fram á fimmtudegi beint á eftir hádegistíma í ræktinni.
Fyrirlestrarnir eru eins og hér segir:
Fimmtudag í viku 2 kl 13:00 – “Komum í veg fyrir beinbrot”, Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir
Fimmtudag í viku 5 kl 13:00 – “Næring og orkan í matnum”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Fimmtudag í viku 8 kl 13:00 – "Fjárfesting í góðri heilsu - hvað get ég gert sjálf/ur", Lars Óli Jessen, íþróttafræðingur
Fimmtudag í viku 11 kl 13:00 – “Heilbrigt samband við mat”, Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Upphafs- og lokaviðtal
Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er boðið upp á 30 min upphafsviðtal við íþróttafræðing námskeiðsins, þar sem gerð verður líkamsmæling (sjá nánar hér) og umræða um heilsu iðkanda. Eftir fyrstu þrjá mánuðina er sambærilegt lokaviðtal innifalið, með líkamsmælingu, áður en fjórði og síðasta mánuðurinn hefst.
Fagaðilar námskeiðsins
Elín Huld Sigurðardóttir – Íþróttafræðingur með margra ára reynslu. Leggur áherslu á jákvæða upplifun af heilsurækt, óháð getu eða markmiðum.
Sigríður Björnsdóttir – Innkirtla- og efnaskiptalæknir. Vann á Karólínska Sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í 15 ár. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem sérfræðingur í offitu og beinþynningu. Unnið bæði í klínískri heilbrigðisþjónustu sem og starfi sem sérfræðingur í beinþynningu og offitu.
Heiðdís Snorradóttir – Næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu, þar með talið langvinna sjúkdóma. Hefur unnið klínískt starf síðastliðin 4 ár og hefur veitt ráðgjöf í sambandi við næringu bæði til einstaklinga og hópa.
Lars Óli Jessen – Lýðheilsufræðingur og fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans. Brennur fyrir að bjóða upp á líkams- og heilsurækt fyrir alla, óháð heilsu eða stöðu í samfélaginu.
Umsagnir
Mér er það ljúft og skylt að mæla með námskeiðinu “Sterkari bein”, hjá Heilsuklasanum, sem ég var svo heppin að vera bent á af konu sem hafði frétt að ég hefði verið greind með beinþynningu. Námskeiðið var bæði fjölbreytt og skemmtilegt og vel sniðið að mínum þörfum. Sem sérfræðingur í hjúkrun, með áratuga reynslu af starfi við endurhæfingu, reyndist námskeiðið mér vel og verða sá stökkpallur sem ég þurfti til að fleyta mér áfram í lífsmáta sem hvetur mig til beinheilsu.
- Jónína Sigurgeirsdóttir
Þetta námskeið hefur gagnast mér vel og bætt mína líðan. Ég er ánægð með hverning námskeiðið er uppbyggt með æfingum til að auka þrek og styrk, einnig hafa fyrirlestrarnir verið fræðandi og vel fram settir hjá ykkur. Ég get vel hugsað mér að fara í framhald sé þess kostur.
- Margrét