Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði
Andleglidan 1 800X533 1

Streita og kulnun - birtingamyndir og bjargráð

Umsjón

Sigrun Asa 900 150X150 2
Sigrún Ása Þórðardóttir
Sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði
Nánar
Snaedís DSC 0076Svhv 150X150 1
Snædís Eva Sigurðardóttir
Sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði
Nánar

Streita og kulnun-Birtingarmyndir og bjargráð

  • Staðsetning: Heilsuklasinn, Bíldshöfða 9, 2. hæð, salur 5

Umsjónaraðilar námskeiðsins eru: Sigrún Ása Þórðardóttir og Snædís Eva Sigurðardóttir

Um námskeiðið: Streita og kulnun-Birtingarmyndir og bjargráð er hópmeðferð þar sem leiðarljósið er að bæta líðan og auka starfsgetu þátttakenda. Það er gert með því að gera þátttakendum kleift að öðlast skilning á áhrifum langvarandi streituálags á heilsu viðkomandi, auk þess að benda á leiðir til að draga úr hamlandi streitueinkennum. Fjallað verður um ólíkar birtingarmyndir streitu og kulnunar, mismunandi stig streitu og leiðir að betri líðan. Hver og einn þátttakandi kortleggur sín streitueinkenni og streituvalda og gerir áætlun sem miðar að því að draga úr einkennum og bæta líðan til skemmri tíma og draga úr líkum á endurteknum streituvanda í framtíðinni.

Meðferðin hentar einstaklingum sem glíma við afleiðingar langvarandi streituálags í starfi og/eða einkalífi og eru farin að finna fyrir truflandi einkennum á borð við hamlandi orku- og úthaldsleysi, erfiðleikum með einbeitingu og minni, pirringi, svefntruflunum, litlu þoli við áreiti, líkamlegum óþægindum og lágt álagsþol.

Fyrirkomulag: Kennt er í 7 skipti,  2,5 klukkustundir í senn. Byggt er á fræðslu, verkefnavinnu, umræðum, heimaverkefnum og æfingum fyrir sefkerfið eins og hugleiðslu og slökun.

  • Forviðtal hjá sálfræðingi í upphafi námskeiðs

  • Hóptímar í umsjón sálfræðinga og sjúkraþjálfara

  • Kennt er í 7 skipti, 2,5 klst í senn

  • Lokaviðtal hjá sálfræðingi í lok námskeiðs

Dagskrá: Hóptímar hjá fagaðilum 

  • Tími1: Áhrif langvarandi streituálags á heilsu og líðan I- kortlagning einkenna og streituvalda

  • Tími 2: Áhrif langvarandi streituálags á heilsu og líðan II- Hvað er til ráða-leiðir að bættri líðan

  • Tími 3:  Sjálfsmat og samkennd í eigin garð

  • Tími 4:  Svefn og svefnráð

  • Tími 5: Streita og hreyfing

  • Tími 6 og 7: Hvernig forðast má að lenda aftur í sama farinu og næstu skref

Námskeiðsgögn: Byggt er á fræðslu, verkefnavinnu í tímum og umræðum. Mikil áhersla er lögð á áætlanagerð og heimaverkefni milli tíma. Þátttakendur fá vinnubók í upphafi námskeiðs sem inniheldur ýmsan fróðleik um streitu og kulnun ásamt verkefnablöðum.

Hafa má samband við umsjónaraðila námskeiðsins ef einhverjar spurningar vakna í tengslum við námskeiðið sjálft, eins líka ef þátttakendur þurfa að boða forföll.

Einnig má hafa samband við Heilsuklasann, bæði símleiðis (599-1600) eða með tölvupósti (mottaka@klasinn.is).