
Önnur fagþjónusta
Ýmsir fagaðilar á sviði heilsu og heilbrigðis starfa í Heilsuklasanum. Má þar nefna næringarfræðing, iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, heyrnarfræðing og markþjálfa.
Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir markþjálfi
Hver er ÉG - Markþjálfun býður upp á fræðslu, vinnustofur og markþjálfun fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki með áherslu á leiðtogafærni, sjálfseflingu og betri samskipti.
Einar Jón Einarsson heyrnarfræðingur
HEYRÐU býður persónulega og faglega þjónustu í heyrnargreiningu, meðferð heyrnarkvilla, eyrnasuðs, hljóðóþols og almenna ráðgjöf.
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi
Heimastyrkur veitir stuðning, ráðgjöf, fræðslu og meðferð fyrir börn og fullorðna, ásamt þjónustu fyrir fagfólk, vinnustaði, félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir.
Heiðdís Snorradóttir næringarfræðingur
Endurnæring veitir ráðgjöf, stuðning og fræðslu í átt að heilbrigðu sambandi við mat og jákvæðri heilsu.