Við heyrum í þér, en heyrir þú í okkur?
Almenn heyrnarþjónusta / heyrnarmælingar
Hefðbundin heimsókn vegna heyrnargreiningar hefst á að sjúkrasaga skjólstæðings er skráð og að því loknu eru eyrun skoðuð og heyrnin mæld. Farið er yfir niðurstöður mismunandi mælinga og ráðgjöf veitt um næstu skref.
Nánari upplýsingar um mismunandi heyrnarmælingar er að finna hér.
Heyrnartæki
HEYRÐU býður upp á fjölbreytt úrval af heyrnartækjum frá Phonak. Mikilvægt er að ráðfæra sig við heyrnarfræðing til að framkvæma þarfagreiningu á því hvaða tæki henta best. Hjá Heyrðu er hægt að fá heyrnartæki lánuð til prufu í þrjár vikur, endurgjaldslaust.
Nánari upplýsingar um mismunandi gerðir af heyrnartækjum er að finna hér.
Heyrn tónlistarfólks
HEYRÐU hefur þróað heyrnarþjónustu sem er sérsniðin að þörfum tónlistarfólks, tónlistarkennara og tónlistarnemenda. Megin áherslur þjónustunnar beinast að skaðlegum áhrifum of mikils hávaða á heyrnina. Veitt er fræðsla um starfsemi eyrans og ráðgjöf. Jafnframt er boðið upp á reglubundið eftirlit og endurhæfingaráætlun ef þörf krefur.
Nánari upplýsingar um heyrnarþjónustu fyrir tónlistarfólk er að finn hér.
Eyrnasuð - Tinnitus
HEYRIR ÞÚ HLJÓÐ SEM ENGINN ANNAR HEYRIR? Ef svo er, þá ert þú ekki ein/n um það. Þú ert líklega með eyrnasuð þ.e. heyrnar- og taugaeinkenni sem hrjáir milljónir einstaklinga um allan heim. Hjá HEYRÐU er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og meðferð til að draga úr einkennum eyrnasuðs. Þverfaglegt teymi sérfræðinga kemur að meðferðinni.
Nánari upplýsingar um eyrnasuð er að finna hér.
Hljóðóþol - Hyperacusis
Hljóðóþol er tiltölulega sjaldgæf heyrnarröskun, þar sem hljóð sem aðrir skynja sem eðlilegt, þ.e. á viðeigandi hljóðstyrk, er oft óþolandi hátt. Einstaklingar með eðlilega heyrn upplifa hljóð á mismiklum hljóðstyrk. Aftur á móti upplifa einstaklingar með hljóðóþol, flest hljóð með of háan hljóðstyrk. Hjá HEYRÐU er boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og meðferð til að draga einkennum hljóðóþols. Þverfaglegt teymi sérfræðinga kemur að meðferðinni.
Nánari upplýsingar um hljóðóþol er að finn hér.
Hljóðóbeit - Misophonia
Hljóðóbeit er röskun sem lýsir sér í skertu þoli fyrir ákveðnum hljóðum og hlutum þeim tengdum. Einstaklingar með hljóðóbeit upplifa ákveðin hljóð sem mjög pirrandi áreiti ásamt því að upplifa oft kvíða og jafnvel reiði. Upplifunin getur verið mjög sterk, jafnvel yfirþyrmandi og erfitt getur verið að hafa stjórn á þeim tilfinningum sem upplifunin framkallar.
Nánari upplýsingar um hljóðóbeit er að finna hér.
Heyrnarvarnir
HEYRÐU býður upp á fjölbreytt úrval af sérsmíðuðum heyrnarvörnum fyrir allar starfsstéttir, með eða án samskiptalausna, til notkunar við mismunandi hlustunarskilyrði. Má þar nefna lausnir fyrir tónlistarfólk, iðnaðarmenn, skotveiðimenn og starfsfólk í öryggisgæslu.
Smelltu hér til að senda fyrirspurn/bóka tíma.
Fyrirlestrar og fræðsla
Hjá Heyrðu leggjum við áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrirlestra tengdum heyrn. Markmið okkar er að fræðslan sé hagnýt og löguð að þörfum hlustenda.
Smelltu hér til að senda fyrirspurn/bóka tíma.