Stoðleið 2 – Hvetjandi – Heilsuklasinn

Stoðleið 2 – Hvetjandi

Stoðleið 2 inniheldur vandaðar og rólegar æfingar, þar sem áhersla er á að auka úthald. Námskeiðið hentar þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, svefnvanda, andlega vanlíðan eða áþekk einkenni og þeim sem vilja komast af stað í rólega og vandaða þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.

Megin markmið námskeiðsins er að þátttakendur tileinki sér reglulega hreyfingu og auki úthald með því að læra að þekkja eigin mörk þegar kemur að álagi, bæði við þjálfun og í daglegu lífi.

Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur og er kennt 2x í viku. Tímar fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum kl 11:00-11:55.