Líkamsrækt á að vera skemmtileg. Þjálfarar námskeiða Heilsuklasans leggja sig alla fram við að hafa hóptíma hressa og á jákvæðu nótunum til að iðkendum hlakki til að koma í næsta tíma. Fjöldi námskeiða eru í boði í líkamsrækt Heilsuklasans og öll eru þau með ólíkar áherslur. Sum eru kröftug, krefjandi og með miklu stuði – á meðan önnur eru rólegri og sérhæfðari fyrir ákveðna hópa. Öll námskeið Heilsuklasans eiga það þó sameiginlegt að stuðla að bættri heilsu iðkenda á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.
Þau námskeið sem í boði eru:
- Klúbburinn er vinsælasta námskeiðið okkar. Gert er ráð fyrir því að iðkendur hafi góðan grunn í hreyfingu og geti stýrt eigin álagi. Kröftugir tímar þrisvar sinnum í viku sem bjóða upp á læti.
- Kvennaleikfimin hentar öllum konum sem vilja bæta heilsu og líðan. Hentar bæði kröftugum konum og þeim sem þurfa að fara varlega í sakirnar.
- Í 60+ eru fjölbreyttar æfingar sem bæta styrk, þol, jafnvægi og liðleika. Regluleg hreyfing á eldri árum viðheldur heilsunni og eykur lífsgæðin.
- Þjálfun í vatni er álíka krefjandi og önnur hefðbundin hreyfing, en minnkar álag á stoðkerfi umtalsvert. Þeir sem finna fyrir verkjum í stoðkerfi eða vegna gigtar geta vel stundað þjálfun í vatni.
- Jóga inniheldur þjálfun á styrk, mjúkar liðkanir og slökun.
- Jóga Nidra er blanda af einföldum líkams-, öndurnar og núvitundaræfingum. Námskeiðið hentar vel fyrir þá sem vilja öðlast kyrrari huga til að draga úr streitu og kvíða.
- Í Zumba og Zumba Gold dönsum við okkur í form. Hress tónlist og jákvæð stemning hjálpar þér að finna leið að betri heilsu.
- Fjölbreytt byrjendanámskeið:
- Grunnnámskeið Heilsuklasans hentar fyrir þá sem eru að koma sér af stað eftir langa pásu. Fyrsta skrefið er erfiðast – leyfðu okkur að hjálpa þér að komast af stað.
- 60+ grunn námskeið er góð byrjun til að læra rétta líkamsbeitingu og koma hreyfingu inn í daglegt líf.
- Líkami og hugur er 8 vikna námskeið sem hannað er út frá hreyfiseðli, sérstaklega fyrir þá sem glíma við einkenni kvíða, þunglyndis og streitu.
- Tökum fyrsta skrefið er námskeið fyrir ungt fólk sem er blanda af líkamsrækt og fræðslu sem stuðlar að heilbrigðum lífsvenjum.
- Léttara líf er 4 mánaða námskeið af líkamsrækt, fræðslu og öðru utanumhaldi fyrir þá sem lifa með offitu.
- Sterkari bein er sérstaklega uppsett fyrir fólk með beinþynningu, þar sem bæði er um reglulega líkamsrækt að ræða og sömuleiðis fræðslufyrirlestra.
- Lifum með verkjunum er heilsuræktarnámskeið uppsett fyrir fólk sem lifir við langvinna verki.