Unnur Steina Björnsdóttir Astma- og ofnæmislæknir – Heilsuklasinn

Unnur Steina Björnsdóttir
Astma- og ofnæmislæknir

Unnur Steina sérhæfir sig í greiningu og meðferð á erfiðum astma og ofnæmissjúkdómum og er m.a. forstöðulæknir Astmagöngudeildar A3 á LSH. Hún er sérfræðingur í Lyflækningum, Astma, Ofnæmislækningum og Klínískri Ónæmisfræði.

Hennar aðal sérþekking liggur í T2 bólgusjúkdómum: Eosinophil astmi, CRSwNP (Chronic Rhinosinusitis with Nasal Polyps), Atopískt eczema, Eosinophil Esophagitis):
Í Heilsuklasanum fer fram greining, fræðsla og meðferð oft í samvinnu við Háls-Nef og Eyrnalækna og Húðlækna.

Meðal þeirra sjúkdóma sem Unnur Steina greinir og meðhöndlar  : 

Astmi : bæði ofnæmisastmi og fullorðins astmi. Hægt er að beita lyfjameðferð og líftæknimeðferð.  Mismunagreiningar og fylgisjúkdómar við  astma skoðaðir.  Fræðsla á umhverfisþáttum og kennsla á lyf.  

Allergiskur rhinitis : Frjónæmi, dýraofnæmi þar sem t.d. er hægt að beita lyfjameðferð og jafnvel AFNÆMINGU fyrir ofnæmisvökum 

Fæðuofnæmi : Greining og ráðleggingar  

Ofnæmi fyrir geitungum, býflugum : Greining og ráðleggingar, meðferð  

Sinusitis og polyposis (Skútubólgur og sepasjúkdómur) : Greining og meðferð. Ónæmisuppvinnsla.  Unnið í samvinnu við Háls-Nef og Eyrnalækna, vísað í aðgerðir og líftæknimeðferð ef þarf   

Ónæmisbrestir : tíðar sýkingar í öndunarfærum.  Uppvinnsla og meðferð.  Möguleiki á mótefnagjöf ef ábending.  

Eosinophil Esophagitis (Rauðkyrningsbólga í vélinda).  Ofnæmisuppvinnsla , fræðsla og meðferð  

Urticaria og Angioedema (Ofsakláði/Þina, og ofsabjúgur). Greining og meðferð, fræðsla.  Unnið í samvinnu við húðlækna.  Möguleiki á líftæknimeðferð ef ábending.  

Atopískt eczema (Ofnæmis/Barna exem) : greining og meðferð, fræðsla. Unnið í samvinnu við húðlækna.  Möguleiki á líftæknimeðferð ef ábending.  

Bráðaofnæmi (Anaphylaxis) Greining, ráðleggingar og meðferð  

Mast frumur sjúkdómar : Mastocytosis, Mast Cell Activation Syndrome,  Greining og Meðferð. 

Eosinophil tengdir sjúkdómar : Hypereosinophilia (Auking á rauðkyrningum í blóði) : Greining og meðferð   

Lyfjaofnæmi : Penicillin próf.  Öðrum lyfjaofnæmum er vísað á Ofnæmisdeild LSH A3.  

T2 bólgusjúkdómar : Eosinophil astmi, CRSwNP (Chronic Rhinosinusitis with Nasal Polyps), Atopískt eczema, Eosinophil Esophagitis): Grening og meðferð í samvinnu við Háls-Nef og Eyrnalækna og Húðlækna.