Í Zumba sláum við saman skemmtun og heilsurækt. Þeim sem finnst gaman að dansa geta dansað sig til betri heilsu við hressa tónlist og jákvæða stemningu í Heilsuklasanum.
Þær Hjördís og Marta Zumbakennarar hafa báðar áratuga reynslu af ýmsum gerðum Zumba. Mikið fjör er í tímum hjá þeim báðum og þær sjá til þess að allir dansi og svitni í takt.
Tvö námskeið eru í boði í Heilsuklasanum:
- Zumba Gold (60+), kennt á þri&fim kl 11:00-11:50. Kennari hópsins er Hjördís
- Zumba, kennt á þri&fim kl 18:40-19:30. Kennari hópsins er Marta
Auk þessara tveggja tíma í viku í lokuðum hópi er innifalinn fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans og því sem honum fylgir. Þar á meðal er opinn Zumba tími alla laugardaga kl 9:30, sem Hjördís og Marta skiptast á að vera með.
Verðtafla:
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 14.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 15.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 16.800 kr |
Stakur mánuður | 17.900 kr |
Hægt er að skrá sig í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.