Sálfræðiþjónustan Styðjandi – Heilsuklasinn

Sálfræðiþjónustan Styðjandi

Hjá sálfræðiþjónustunni Styðjandi í Heilsuklasanum starfar fjölbreyttur hópur sálfræðinga, sem býr yfir víðtækri fagkunnáttu á sviði meðferðar, ráðgjafar og greiningarvinnu. Boðið er upp á meðferð fyrir einstaklinga og hópa og eru okkar sérsvið meðal annars meðferð við þunglyndi og kvíða, átröskunarvanda, sjálfsmyndarvanda, áföllum, örmögnun og kulnun og langvinnum verkjum. 

Meðal þeirra meðferðarforma sem í boði eru hjá Styðjandi eru hugræn atferlismeðferð, EMDR, samkenndarnálgun, núvitund auk ýmissa hópúrræða. 

Boðið er upp á meðferðarvinnu með börnum og ungmennum ásamt forráðamönnum.  Hluti sálfræðinganna sinnir sérstaklega parameðferð.  Auk þess sinna margir sálfræðingar hjá okkur fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Meðferð byggir alltaf á viðurkenndum og gagnreyndum aðferðum. Sálfræðingar Styðjandi eru í samstarfi við aðrar fagstéttir Heilsuklasans sem og heilsugæsluna Höfða.

Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá Styðjandi. Sjá nánari upplýsingar hér

Sálfræðingar Styðjandi njóta allir handleiðslu reyndra sérfræðinga í störfum sínum.

Tímabókanir fara fram í síma 599-1600 eða í gegnum netfangið mottaka@klasinn.is