Brons æfingaáætlun – Heilsuklasinn

Brons æfingaáætlun

Margir kjósa að æfa sjálfir í tækjasal á tímum sem henta hverju sinni. Því fylgir ákveðið frelsi að vera ekki bundinn ákveðnum tímasetningum og geta mætt eftir eigin hentugleika. Þegar æft er án þjálfara skiptir máli að vita hvaða æfingar er æskilegt að framkvæma, hversu oft, hversu lengi, hversu þungt, hvað á að forðast o.s.frv.

Vilt þú æfingaáætlun sem sett er upp út frá þínum markmiðum, þinni líkamlegri getu og þínu áhugasviði? Fáðu íþróttafræðing Heilsuklasans til að leiðbeina þér og setja upp æfingaáætlun sem hjálpar þér að ná þeim árangri sem þú sækist eftir.

Verð fyrir Brons æfingaáætlun er 27.900 kr. Innifalið í verðinu er:

  • Símaviðtal við íþróttafræðing
  • Uppsetning einstaklingsmiðaðrar æfingaáætlunar
  • Klukkutíma kennsla með þjálfara á æfingaáætlunina
  • Mæling á líkamsgreiningartæki
  • Mánaðarkort í líkamsrækt Heilsuklasans

Hægt er að bóka Brons æfingaáætlun í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.