Þegar við eldumst er enn mikilvægara en áður að viðhalda hreyfingu í rútínu hversdagsins. Með reglulegri hreyfingu á efri árum eru lífsgæði aukin og heilsunni viðhaldið.
Á 60+ námskeiðum Heilsuklasans er áhersla lögð á fjölbreytta þjálfun. Unnið er að bættu þoli og auknum styrk í vinalegu andrúmslofti Heilsuklasans. Í 60+ er einnig sérstök áhersla á jafnvægi og liðleika, þar sem þeir líkamlegu þættir eiga til að dvína með hækkandi aldri ef ekki er unnið markvisst að þeim.
Þjálfarar 60+ námskeiða Heilsuklasans sýna fjölbreyttar útfærslur af æfingum til að hver og einn geti valið erfiðleikastig út frá eigin getu. Einnig ganga þeir á milli iðkenda og leiðbeina eftir þörfum.
Hægt er að byrja hvenær sem er og innifalið eru þrír tímar í viku og fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans. Tveir fastir tímar eru fyrir hvern hóp, en fyrir þá sem vilja bæta þriðju æfingunni við þá er opinn 60+ tími á föstudögum kl 11:00. Tímasetningar námskeiðsins eru:
-
- Mánudaga og miðvikudaga kl 10:00 (Sigríður)
- Mánudaga og miðvikudaga kl 11:00 (Sigríður)
- Mánudaga og miðvikudaga kl 16:30 (Ingunn)
- Þriðjudaga og fimmtudaga kl 10:00 (Saadia Auður)
- Opinn 60+ tími alla föstudaga kl 10:00 (Sigríður)
- Opinn 60+ tími alla föstudaga kl 11:00 (Sigríður)
Verðtafla:
Mánaðarverð í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu | 14.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift með 2 mánaða uppsagnarfresti | 15.800 kr |
Mánaðarverð í áskrift án uppsagnarfrests | 16.800 kr |
Stakur mánuður | 17.900 kr |
Hægt er að skrá sig í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.