Fyrstu skrefin í líkamsrækt eru oft erfiðust. Þegar farið er af stað er mikilvægt er að fá kennslu um rétta líkamsbeitingu og eftirfylgni til að vera viss um að æfingar séu rétt framkvæmdar.
Á 60+ grunn námskeiði Heilsuklasans sér íþróttafræðingur bæði um áður nefnda kennslu og eftirfylgni, en aðstoðar einnig hvern og einn iðkanda við að finna hæfilegt álag til að stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Tímar fara fram í hóptímasal þar sem mikið er lagt upp úr kennslu og yfirferð æfinga.
Að loknu námskeiði er markmiðið að iðkendur hafi bæði öðlast líkamlega getu og sömuleiðis lært helstu æfingar nógu vel til að geta skráð sig áfram á 60+ námskeið Heilsuklasans. Grunnurinn að farsælli heilsueflingu til lengri tíma er lagður á 60+ grunn námskeiðinu, sem stuðlar að góðri heilsu og auknum lífsgæðum á efri árum.
Verð fyrir sex vikna 60+ grunn námskeið Heilsuklasans er 25.900 kr. Næstu 60+ grunn námskeið hefjast:
- Mánudaginn 11. nóvember, kennt mán&mið kl 16:30 í sal 2 (Saadia Auður er þjálfari hópsins)
- Þriðjudaginn 12. nóvember, kennt þri&fim kl 9:00 í sal 3 (Saadia Auður er þjálfari hópsins)
Hægt er að skrá sig í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.