Jóga Nidra er leidd hugleiðsla sem kallast öðru nafni „jógískur svefn”. Þar aftengjumst við hugsunum okkar, virkjum slökunarviðbragð líkamans sem leiðir okkur inn í djúpa hvíld sem svipar til svefns.
Jóga Nidra samanstendur af líkams-, öndunar- og núvitundaræfingum þar sem við förum frá hinu ytra inn í djúpt slökunarástand. Þannig lærum við smám saman að takast á við álag með kyrrari huga sem dregur úr streitu og kvíða.
Jóga Nidra fer þannig fram að í upphafi eru gerðar nokkrar einfaldar jógaæfingar eða teygjur og síðan fer hugleiðslan fram í liggjandi stöðu á dýnu undir teppi. Hver tími stendur yfir í klukkutíma. Kennari námskeiðsins er Jóhanna Björk Briem, sem meðal annars er jógakennari, sjúkranuddari og með M.A. í forvörnum og áhættuhegðun.
Námskeiðið fer fram 1x í viku (mánudaga kl 14 eða miðvikudaga kl 14) og stendur yfir í 8 vikur. Einnig er fullur aðgangur að vel útbúnum tækjasal Heilsuklasans innifalinn í námskeiðsverði. Verð fyrir 8 vikna námskeið eru 29.900 kr.
Í hverjum mánuði fer af stað nýr hópur í jóga nidra, til að fá nánari upplýsingar um upphafsdagsetningar skal hafa samband á netfangið mottaka@klasinn.is. Hægt er að skrá sig í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.