Sterkari bein – Heilsuklasinn

Sterkari bein

Sterkari bein er grunn námskeið í heilsurækt, sérstaklega uppsett fyrir fólk með beinþynningu eða í það minnsta minnkaðan beinmassa. Stærsti hluti námskeiðsins er í formi reglulegrar líkamsræktar undir handleiðslu íþróttafræðings, en einnig eru fræðslufyrirlestrar hjá næringarfræðingi, innkirtlalækni og íþróttafræðingi. Með reglulegri hreyfingu undir handleiðslu fagaðila og fræðslu sérfræðinga á ýmsum sviðum heilsu eru allar forsendur fyrir hendi til að geta bætt heilsu og lífsgæði til lengri tíma. Um er að ræða 4 mánaða námskeið, sem vonir standa til um að sé einungis upphafið af heilsusamlegum lífstíl út ævina.

Innifalið í námskeiðinu
Eins og áður segir stendur námskeiðið yfir í 4 mánuði. Tímabilið skiptist í 12 vikur í lokuðum hóp, þar sem í framhaldinu taka við 5 vikur í framhaldshóp. Á fyrstu 3 mánuðunum er lagður grunnur að reglulegri hreyfingu, þar sem farið er reglulega og ítarlega yfir rétta líkamsbeitingu. Auk þess er æfingaálagi stýrt þannig að farið sé rólega af stað og svo hægt og rólega eykst erfiðleikastig í þjálfun í taki við aukinn styrk og bætt þol iðkenda. Á fyrstu 3 mánuðum fara einnig fram fjórar fræðslur og því er vænst til þess að iðkendur séu tilbúnir til að taka næsta skref á síðasta mánuði námskeiðsins, þar sem iðkendum býðst til að velja á milli ýmissa framhaldshópa í líkamsrækt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Líkamsræktarhluti námskeiðsins er kenndur alla þriðjudaga og fimmtudaga kl 13:00-13:50. Mesta áherslan verður alltaf á styrktarþjálfun, þar sem rannsóknir sýna að slík þjálfun er talin heppilegust til að lágmarka líkur á beinbroti. Einnig er þó unnið markvisst í jafnvægi, liðleika og þoli. Tímarnir fara fram að langmestu leiti í lokuðum sal, þó einnig fari fram kennsla í tækjasal. Fullur aðgangur að tækjasal Heilsuklasans er innifalinn og kennslan snýr fyrst og fremst að því að hjálpa fólki að kunna á stillingar á tækjum og öðrum búnaði svo hægt sé að koma oftar á eigin vegum í ræktina, sé vilji til þess. Fyrstu vikurnar er mælt með að markmiðið sé að mæta í sem allra flesta tíma og láta annað vera aukaatriði.

Fræðsluhluti námskeiðsins er í höndum þriggja fyrirlesara. Í heildina eru fjórir fyrirlestrar, tveir hjá næringarfræðingi, einn hjá innkirtlalækni og einn hjá íþróttafræðingi. Um er að ræða u.þ.b. klukkutíma fyrirlestur, í beinu framhaldi af tíma í líkamsræktinni. Mikilvægi þessa fyrirlestra er umtalsvert og því mælum við eindregið með því að iðkendur leggi sig fram í að komast á þá sömuleiðis.

Til viðbótar við reglulega líkamsrækt og fræðslu er í boði bæling á DEXA skanna hjá Beinstyrk í upphafi námskeiðs. Slík mæling gefur nákvæmar niðurstöður um t.d. vöðvamassa, fitumassa og beinþéttni. Fyrir þá sem vilja aðra mælingu í lok námskeiðs, þá býðst iðkendum slík mæling með túlkun niðurstaðna á 50% afslætti.

Fagaðilar námskeiðsins
Saadia Auður Dhour, íþróttafræðingur
Heiðdís Snorradóttir, næringarfræðingur
Lars Óli Jessen, íþróttafræðingur
Sigríður Björnsdóttir, innkirtlalæknir

Verð og næstu námskeið
Verð á námskeiðið eru 24.900 kr á mánuði, með skuldbindingu í 4 mánuði. Heildarverð er því 99.600 kr.

Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 24. september kl 13:00. Fyrirlestrar haustnámskeiðs 2024 eru eins og hér segir:

  • Fim 3. okt kl 14:00 (Vika 2) – “Komum í veg fyrir beinbrot”, Sigríður, innkirtlalæknir
  • Fim 31. okt kl 14:00 (Vika 6) – “Næring og orkan í matnum”, Heiðdís, næringarfræðingur
  • Fim 14. nóv kl 14:00 (Vika 8) – “Fjárfesting í góðri heilsu – hvað get ég gert sjálf/ur”, Lars, íþróttafræðingur
  • Fim 5. des kl 14:00 (Vika 11) – “Næring og beinheilsa – hvað spilar saman?”, Heiðdís næringarfræðingur

Hægt er að skrá sig í móttöku Heilsuklasans eða með tölvupósti á netfangið mottaka@klasinn.is.