Samstarfsaðilar – Heilsuklasinn

Samstarfsaðilar

Líkamsrækt Heilsuklasans starfar náið með ýmsum samstarfsaðilum. Allir eiga þeir það sameiginlegt að nýta sér faglega þekkingu til að efla heilsu og líðan skjólstæðinga sinna.

Stígandi sjúkraþjálfun veitir sína þjónustu í Heilsuklasanum. Stígandi hefur á annan tug meðferðarrýma til sjúkraþjálfunar, auk þess að bjóða bæði upp á sérhæfð námskeið í hóptímasölum og að sinna æfingameðferðum í tækjasal Heilsuklasans.

Sálfræðiþjónustan Styðjandi starfar í húsakynnum Heilsuklasans. Til viðbótar við að sinna hefðbundinni sálfræðiþjónustu eru sálfræðingar Styðjanda með sérhæfð fræðslunámskeið.

Endurnæring sérhæfir sig í næringarráðgjöf þar sem áherslur eru á að öðlast heilbrigt samband við mat með tilliti til lífstíls og heilsufars. Heiðdís næringarfræðingur veitir persónumiðaða þjónustu og faglegan stuðning í átt að langvarandi árangri sem endist.

Háls- og bakskóli Hörpu er með hluta starfsemi sinnar í líkamsrækt Heilsuklasans. Þar er um að ræða hóptíma undir leiðsögn sjúkraþjálfara, sem hentar þeim sem eru með verki í hálsi og/eða baki.

Ekki gefast upp er líkamsrækt fyrir ungmenni sem glíma við andlega vanlíðan, svo sem þunglyndi, kvíða og félagsfælni. Markmið námskeiða þeirra er að auðvelda unglingum að taka skrefið og stunda líkamsrækt sem heilsubót.

Hólm næring er styrktarþjálfari sem brennur fyrir að fylla fólk eldmóði, kveikja áhuga, örva og valdefla með hreyfingu.

Kojak Barpas sinnir allri sinni þjálfun í Heilsuklasanum. Fyrst og fremst er hann með þjálfun á smærri hópum sem vilja mikið púl.