Styðjum hvort annað – Heilsuklasinn

Styðjum hvort annað

Um hópmerðferðina

Hrefna og Ólöf hafa veitt pörum meðferð í áratug og byggist námskeiðið á meðferð Sue Johnson, Emotionally focused couples therapy, sem hefur samkvæmt niðurstöðum rannsókna sýnt mestan árangur í parameðferð.

Námskeiðið er fyrir pör til þess að hjálpa þátttakendum að:

  • Skilja ást
  • Skilja tilfinningar og þarfir
  • Stjórna neikvæðu samskiptamynstri
  • Móta ástrík tengsl

Fyrirkomulag og kostnaður

Kennt er vikulega í átta skipti, tvær klukkustundir í senn og fer kennsla fram á miðvikudögum kl 18:00-20:00.

Kennarar: Hrefna Hrund Pétursdóttir og Ólöf Edda Guðjónsdóttir sálfræðingar sjá um þetta námskeið. Báðar hafa þær víðtæka reynslu í meðferð á pörum.

Verð á par: 100.000 kr

Skráning og frekari upplýsingar

Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 19. apríl 2023 kl 18:00. Fyrir skráningu eða frekari upplýsingar skal senda tölvupóst á olof.edda.gudjonsdottir@klasinn.is.